Eurovision helgarferð að Úlfljótsvatni 12. - 13. maí
Framundan er helgarferð um ægifagurt landssag. Lagt af stað laugardaginn 12 maí kl 11:00 frá Olís bensínstöðinni við Norðlingaholt. Hjólað verður eftir Suðurlandsvegi, beygt inn á veg nr. 431, Hafravatnsveg. Þaðan farin Nesjavallaleið upp með Henglinum, niður að Þingvallavatni og áfram til Úlfljótsvatns. Þar verður gist í góðum bústöðum með heitum potti. Leiðin er 50 km, að mestu á malbiki. Allar tegundir af reiðhjólum henta, nema racer.